Hagtölur og mælaborð
Greining á húsnæðismarkaði hverju sinni byggir mikið á margvíslegum tölulegum gögnum. Það getur oft verið erfitt að finna slík gögn.
Hér er dregið saman megnið af þeim nauðsynlegu gögnum til þess að rannsaka stöðu húsnæðismála.
Í stuttu máli
Hvar finn ég tölurnar?
Hér eru helstu gagnaveitur um húsnæðismarkaðinn á einum stað. Flestar tölurnar koma frá HMS og Hagstofu Íslands og eru uppfærðar reglulega.
Kaupverð og sala
Kaupverðsjá og kaupskrá HMS sýna á hvaða verði íbúðir hafa selst, eftir svæðum og tegund íbúða.
Leiga
Leiguverðsjá HMS byggir á skráðum leigusamningum og sýnir leiguverð eftir svæðum og stærð íbúða.
Framboð og uppbygging
Mælaborð HMS sýna hversu margar íbúðir eru í byggingu og hvernig sveitarfélögin áætla uppbyggingu næstu ára.
Verðlag og vísitölur
Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs, sem verðtryggð lán fylgja, auk vísitalna íbúðaverðs og leiguverðs.
Vísitala sýnir breytingu frá tilteknum upphafspunkti en ekki verð í krónum. Til að sjá raunverð þarf að taka tillit til verðbólgu.