Lærðu um verðtryggingu húsnæðislána
Í stuttu máli
Hvað er verðtrygging?
Verðtryggt lán er tengt vísitölu neysluverðs, sem mælir verðbólgu. Þegar verðlag hækkar hækka bæði eftirstöðvar lánsins og afborganirnar í krónum talið. Á móti eru vextirnir lægri en á óverðtryggðum lánum.
Lægri greiðslur í byrjun
Mánaðargreiðslan byrjar lægri en á óverðtryggðu láni af sömu upphæð, en hún hækkar með verðbólgu yfir lánstímann.
Lánið getur hækkað
Á löngum lánum með jöfnum greiðslum hækka eftirstöðvarnar oft fyrstu árin áður en þær fara að lækka.
Óverðtryggt til samanburðar
Á óverðtryggðu láni lækka eftirstöðvarnar frá fyrsta degi, en vextirnir eru hærri og greiðslurnar því hærri í byrjun. Vextirnir eru oftast fastir í nokkur ár og breytast svo.
Hvort hentar þér?
Það fer eftir því hvað þú ræður við að greiða núna og hvernig þú heldur að verðbólgan þróist. Margir skipta láninu og taka hluta af hvoru.
Reiknivélin sýnir hvernig greiðslur og eftirstöðvar þróast hjá báðum lánategundum.
Berðu saman lánin í Excel
Tvö reiknilíkön sem bera saman verðtryggð og óverðtryggð lán, bæði með jöfnum afborgunum og jöfnum greiðslum.
- Sæktu skjalið og opnaðu það í Excel.
- Í flipanum Verðtryggt slærðu inn lánsupphæð, verðbólgu, raunvexti og lánstíma efst á síðunni.
- Hinir fliparnir uppfærast sjálfkrafa og sýna greiðslur, vexti og eftirstöðvar verðtryggðra og óverðtryggðra lána.
Ritrýndar greinar
4 heimildir-
2013
Verðtrygging, þjóðarsátt og inntak kjara-samninga
-
2011
Verðtryggðir samningar—Saga þeirra og eiginleikar
-
2003
The Invention of Inflation-Indexed Bonds in Early America
-
1998
Indexed Units of Account: Theory and Assessment of Historical Experience
Skýrslur
9 heimildir-
2016
Skýrsla: Fjármála- og efnahagsráðherra um niðurfærslu verðtryggðra fasteignalána
-
2013
Efnahagsmál nr. 6: Verðtrygging 101
-
2013
Þjóðhagsleg áhrif tillagna um aðgerðir til leiðréttingar verðtryggðra húsnæðislána
-
2012
Greinargerð um afföll íbúðalána við stofnun nýju bankanna og kostnað við niðurfærslu lána
-
2012
Nauðsyn eða val Verðtrygging, vextir og verðbólga
-
2012
Þaksetning vaxta og verðbóta: Um möguleika þess að setja þak á raunvexti eða verðbætur verðtryggðra lána
-
2010
Verðtrygging fjárskuldbindinga
-
2009
Verðtrygging og peningastefna
-
1998
Sérrit 3: Verðtrygging lánsfjármagns og vaxtastefna á Íslandi
MS námsritgerðir
6 heimildir-
2023
Óverðtryggð eða verðtryggð húsnæðislán?
-
2018
Verðbólgutrygging á verðtryggð húsnæðislán
-
2014
Áhrif uppgjörskröfu lífeyrissjóða á verðtryggða vaxtarófið
-
2013
Er verðtryggingin vandamálið? Of hæg niðurgreiðsla og lánatími of langur á fasteignalánum
-
2013
Heimildir til verðtryggingar að íslenskum rétti. Úrlausnir dómstóla um gengistryggingu lánsfjár
-
2012
Verðtrygging húsnæðislána og áhrif hennar á fjárhag heimilanna
BSc ritgerðir
17 heimildir-
2023
Að auka eigið fé: Er hægt að spara á verðbólgutímum?
-
2021
Leiðni stýrivaxta á verðtryggðum markaði: Torveldar verðtrygging miðlun peningastefnunnar um vaxtafarveginn?
-
2018
Hefur breyting á útreikningsaðferð vísitölu til verðtryggingar haft áhrif á húsnæðislán?
-
2017
Þaksetning verðbóta: Lögbundin nauðsyn eða valkostur á frjálsum markaði?
-
2017
Getur verðtryggt lán með jöfnum greiðslum verið hagstæðasta húsnæðislánið? : Áhrif breytts greiðsluferils á heildargreiðslur og lánstíma
-
2016
Fasteignalán: Hvort er verðtryggt eða óverðtryggt hagstæðara?
-
2016
Samanburður á verðtryggðum og óverðtryggðum lánum
-
2015
Fasteignalán: Samanburður á verðtryggðum og óverðtryggðum lánum
-
2013
Samanburður á verðtryggðum og óverðtryggðum húsnæðislánum: “Þegar tekið er húsnæðislán í dag, hvort er hagkvæmara að taka verðtryggt lán eða óverðtryggt?”
-
2013
Leiðni peningastefnu Seðlabanka Íslands: Er verðtryggingin óþægur ljár í þúfu Seðlabankans?
-
2012
Samanburður á verðtryggðum og óverðtryggðum íbúðalánum. Hvor lánakosturinn er hagstæðari fyrir lántakann?
-
2012
Verðtrygging. Er verðtrygging íbúðalána flókin afleiða?
-
2012
Verðtrygging. Áhrif afnáms á vexti og lánsframboð
-
2012
Samanburður húsnæðislána: Er fýsilegt að tengja húsnæðislán með tveimur vísitölum
-
2011
Verðtrygging á fjármálamarkaði
-
2011
Á að leggja niður verðtryggingu á Íslandi?
-
2010
Verðtrygging íbúðalána
Fjölmiðlaumfjöllun
3 heimildir-
2024
Óverðtryggð lán mun dýrari sökum gullhúðunar stjórnvalda
-
2022
„Nýja snjóhengjan“: Hundruð milljarða skuldir færast senn af sögulega lágum vöxtum
-
2021
Enn reynt að banna verðtryggð lán án þess að banna þau að fullu
Engar heimildir fundust.